Ertu á leið í sjóinn?
Í tilefni Evrópsku Íþróttavikunnar #BeActive var SJÓR með kynningu á sjósundi í Nauthólsvík fimmtudaginn 24. September kl. 17:00. Við sögðum stuttlega frá sjósundi og kostum þess að stunda sjóinn fyrir líkama og sál, hvernig sé best að bera sig að og helstu öryggisatriði. Við fórum síðan í sjóinn með þeim sem vildu prófa og hituðum okkur upp í gufubaðinu og pottinum. Boðið var upp á klassískar sjórbaðsveitingar. #sjór #reykjavíkurborg #ísí ...





2 CommentsComment on Facebook
Við vorum 21 sem mættum, tveir voru of seinir í myndatöku. Fólk var mjög spennt að sjá Maurildi. Veðurglugginn var æðislegur logn og þurrt sjávarhiti 9°C og lofthiti 8°C.Það var svo gaman að heyra gleðiópin er fólk sá þau. Góð lýsing sem einn sagði þetta er eins og glimmer í sjónum 🌊🌊🌊Allir voru með andlitið ofan í sjónum. Þegar síðasta fólkið settist inn í bílinn þá kom hellirigning.Takk kærlega fyrir komuna. Ekki voru margar myndir teknar þar sem mikið myrkur var 🥰 ...





2 CommentsComment on Facebook
Og fleiri myndir úr Hvammsvíkursundinu 🧜♀️🧜♂️🧜 ...





0 CommentsComment on Facebook
Hér koma nokkur myndbönd úr Hvammsvíkursundinu. ...
0 CommentsComment on Facebook
Hvammsvíkursundið fór fram við sannkallaðar draumaaðstæður. Sjórinn var 12 °C, heiðskírt og logn – og náttúrufegurðin í Hvammsvík hreint út sagt ólýsanleg. Alls tóku 19 sundgarpar þátt. Björgunarsveitin Ársæll fylgdi hópnum eftir og gætti öryggis sundfólksins af sinni alkunnu fagmennsku. Nokkrir selir slógust einnig í för með sundfólkinu og fylgdu því eftir á leiðinni. Við viljum því meina að við höfum, að vanda, verið í einstaklega góðum selskap! 🦭 Að sundi loknu slökuðum við á í pottunum í Hvammsvík og fengum svo að prófa nýju finnsku sánuna, þar sem stórkostlegt útsýnið gerði upplifunina enn betri. Ógleymanlegur dagur í einstöku umhverfi. Hjartans þakkir til allra sem tóku þátt og lögðu sitt af mörkum. 💙 ...





0 CommentsComment on Facebook
Enn er opið fyrir skráningu í Hvammsvíkursundið í fyrramálið 🏊♀️Mæting kl. 10:30Blika.is spáir alveg blankalogni! ...

Hvammsvíkursundið 2026 - Hvammsvík - Hot Springs
hvammsvik.com
Hvammsvíkursundið Hvammsvíkursundið verður haldið sunnudaginn þann 6. september. Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við SJÓR, Sund og sjóbaðsfélag Reykjavíkur. Gæsla er á staðnum. ...0 CommentsComment on Facebook
🌊 Ertu tilbúin/n í eitt fallegasta sjósund ársins?Sunnudaginn 6. september verður Hvammsvíkursundið haldið í samstarfi við SJÓR.Syntur verður 1,2 km hringur umhverfis hólmann í Hvammsvík – í stórbrotnu umhverfi þar sem fjöllin, sjórinn og kyrrðin skapa alveg einstaka upplifun.Að sundi loknu fá þátttakendur:♨️ Aðgang að sjóböðunum🍲 Heita og góða súpu🏊 Sérmerkta sundhettu😊 Og vonandi þessi dásamlega tilfinning sem fylgir því að takast á við skemmtilega sjósundsáskorun!💙 Gerið dag úr þessu saman!Fjölskylda og vinir geta einnig keypt aðgang að sjóböðunum og fengið súpu fyrir 10.900 kr. Þannig geta þau notið Hvammsvíkur með þér og tekið á móti þér að sundi loknu - þótt þau syndi ekki.📅 Sunnudagur 6. september⏰ Mæting kl. 10:30📍 Hvammsvík - Nature Resort & Hot Springs💳 Verð: 10.900 kr.Þátttakendur þurfa að hafa synt Fossvogssundið eða sambærilegt sund áður.Komdu með okkur í ógleymanlegt sund í einni fallegustu vík landsins - og taktu fólkið þitt með þér💙Nánari upplýsingar og skráning:hvammsvik.com/is/hvammsvikursundid_2026/#Hvammsvíkursundið #SJÓR #Sjósund #Hvammsvík ...

Hvammsvíkursundið 2026 - Hvammsvík - Hot Springs
hvammsvik.com
Hvammsvíkursundið Hvammsvíkursundið verður haldið sunnudaginn þann 6. september. Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við SJÓR, Sund og sjóbaðsfélag Reykjavíkur. Gæsla er á staðnum. ...4 CommentsComment on Facebook
Það voru 42 vaskir sjósundskappar sem þreyttu sundið út í Viðey í dag. Sjávarhiti var 12,4°C, lofthiti 12,7°C, vindur 5 m/s og ölítill rigningarúði af og til.Það var áberandi straumur þvert á leiðina svo flestir sundmenn syntu í sveig á leið sinni út í Viðey, sem lengdi sundið eitthvað. Þegar fór að síga á seinni hluta sundsins jókst vindur og straumurinn varð sterkari og því varð síðasti spölurinn heldur lengri hjá þeim sem ráku lestina.Við þökkum öllum sem tóku þátt í þessum viðburði fyrir frábæra samveru!Við þökkum öllum sem aðstoðuðu okkur við sundið, sjálfboðaliðum í landi og á sjó og Björgunarsveitinni Ársæli. Þetta væri ekki hægt án ykkar.Hér koma myndir frá A & R Photos sem gaman er að skoða. ...





0 CommentsComment on Facebook
og fleiri myndir úr sundinu. ...





1 CommentsComment on Facebook
Hér koma fyrstu myndirnar úr sundinu í dag. ...





1 CommentsComment on Facebook
🏊♀️ Synt út í Viðey sem fer fram föstudaginn 21. ágúst kl. 17:00📍 Staður: Gufunes⏰️ Skráningu lýkur: Fimmtudaginn 20. ágúst kl. 24:00👉 Skráning og nánari upplýsingar:www.abler.io/shop/sjor?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6Mjg3NTM=Deildu endilega með sundfólki sem gæti haft áhuga!* ath. til þess að fá þátttökurétt í Synt út í Viðey þá þarf að hafa synt Fossvogssund ...
0 CommentsComment on Facebook
🏊♀️ Synt út í Viðey sem fer fram föstudaginn 21. ágúst kl. 17:00📍 Staður: Gufunes⏰️ Skráningu lýkur: Fimmtudaginn 20. ágúst kl. 24:00👉 Skráning og nánari upplýsingar:www.abler.io/shop/sjor?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6Mjg3NTM=Deildu endilega með sundfólki sem gæti haft áhuga!* ath. til þess að fá þátttökurétt í Synt út í Viðey þá þarf að hafa synt Fossvogssund ...
2 CommentsComment on Facebook