Velkomin á vefinn okkar

Skilmálar vegna sjósunda á vegum SJÓR

Skilmálar

  1. Mér er ljóst að þrátt fyrir að félögin viðhafi ákveðnar ráðstafanir sem eru til þess fallnar að draga úr hættu á óhöppum í sjósundinu þá er sjósundið krefjandi og getur verið hættulegt, einkum þeim sem ekki eru við góða heilsu og eða í góðu formi. Ég staðfesti hér með að ég er í góðu líkamlegu og andlegu ástandi en að ég ber ein/einn fulla ábyrgð á að meta, eða leita mér aðstoðar t.d. læknis til að meta, hvort mér sé óhætt að taka þátt í sjósundinu.
  2. Mér enn fremur ljóst að félögin eru félagsskapur áhugamanna um sund í vötnum og sjó sem hvorki bjóða upp á neins konar tryggingar fyrir tjóni sem þátttakendur kunna að verða fyrir í tengslum við sjósundið né eru sjálf tryggð fyrir tjóni í tengslum við sjósundið.
  3. Ég geri mér fulla grein fyrir að með því að taka þátt í sjósundinu set ég mig í hættu, til dæmis af völdum veðurs, strauma, sjólags, sjávarlífs eða annars á eða í sjónum, samstuðs við aðra þátttakendur, óhapps eða ófyrirséðra atburða og að þátttaka mín kann að leiða til þess að ég veikist, slasist, örkumlist eða deyi. Þá staðfesti ég að ég er meðvituð/meðvitaður um að athafnir eða athafnaleysi mitt, annarra þátttakenda eða þeirra sem taldir eru upp í lok 4. töluliðar, hér að neðan, kunna að eiga þátt í framangreindum afleiðingum.
  4. Ég staðfesti hér með, af fúsum og frjálsum vilja, að ég tek þátt í sjósundinu alfarið á eigin ábyrgð. Ég lýsi hér með yfir með bindandi og óafturkræfum hætti, bæði fyrir mig, fjölskyldu mína og erfingja, að ég mun halda eftirtöldum að fullu og öllu skaðlausum og að ég mun ekki, né er öðrum heimilt fyrir mína hönd, að gera nokkrar kröfur af neinu tagi á hendur þeim vegna óhapps, slyss, veikinda, neinna annarra afleiðinga af þátttöku minni í sjósundinu eða annars sem ég kann að verða fyrir í tengslum við sjósundið: Félögin, félagsmenn þeirra, sjálfboðaliðar og stjórnendur félaganna og allir þeir sem koma að því að veita aðstöðu fyrir, undirbúa, skipuleggja eða framkvæma sjósundið.
  5. Ég staðfesti enn fremur að ég að ég ber ein/einn ábyrgð á allri háttsemi minni í sjósundinu og afleiðingum sem hún kann að hafa fyrir, svo sem fyrir aðra þátttakendur eða fyrir þá sem taldir eru upp í lok 4. töluliðar hér að framan.
  6. Ég geri mér grein fyrir að af hálfu félaganna eru teknar ljósmyndir af sjósundinu þar sem ég kann að koma fyrir. Ég samþykki hér með fyrir mitt leyti, af fúsum og frjálsum vilja, að slíkar ljósmyndir verði teknar og birtar opinberlega, svo sem á heimasíðum eða í ársskýrslum félaganna eða í umfjöllun fjölmiðla um sjósundið eða aðra starfsemi félaganna.
  7. Loks veiti ég hér með fulla og ótakmarkaða heimild til hverra þeirra aðgerða sem þeir sem standa að sjósundinu meta viðeigandi til að koma mér til aðstoðar eða bjargar í sjósundinu og heiti því að fara að þeirra fyrirmælum að fullu og öllu í tengslum við slíkar aðgerðir, að svo miklu leyti sem ég verð fær um slíkt.