Velkomin á vefinn okkar

Nauthólsvík

Stutt lýsing

Ylströndin í Nauthólsvík, sem tekin var í notkun árið 2000, hefur sannarlega fest sig í sessi sem paradís í borgarlandinu sem laðar að jafnt innlenda sem erlenda gesti. Voldugir sjóvarnargarðar loka af fallegt lón þar sem kaldur sjór og heitt vatn renna saman í eitt. Inn fyrir garðana hefur verið dælt gullnum skeljasandi og minna þessar aðstæður meira á strendurnar við sægrænt Miðjarðarhafið en vík í nyrstu höfuðborg heims við Norður-Atlantshafið. Markmiðið með þessum framkvæmdum var að gera Nauthólsvík að fjölbreyttu útivistarsvæði þar sem lögð er áhersla á útiveru, sólböð, sjóböð og siglingar líkt og tíðkaðist hér fyrr á árum.

Þjónusta allt árið um kring

Í Nauthólsvík er að finna þjónustumiðstöð með búnings- og sturtuaðstöðu fyrir baðgesti auk veitingasölu og grillaðstöðu. Fyrir framan þjónustumiðstöðina er löng setlaug sem er um 38°C heit. Í flæðarmáli strandarinnar er uppstreymispottur til hitunar á lóninu sem jafnframt er íverustaður. Einnig er að finna eimbað á Ylströndinn.

Góð aðsókn hefur verið að Ylströndinni og koma að meðaltali hátt í 530.000 gestir á hverju ári á ströndina. Það er því óhætt að segja að ströndin hafi fest sig í sessi sem spennandi íverustað, hvort sem er fyrir fólk sem vill flatmaga á gylltri strönd á sólskinsdögum eða eldhugana sem víla ekki fyrir sér að baða sig um hávetur.

Myndir
Ein stór forsíðumynd og síðan myndasafn.

Aðkoma og bílastæði
Gengið frá bílastæði niður að þjónustumiðstöð.

Aðgengi fyrir hreyfihamlaða
Fjögur merkt stæði eru fyrir fatlaða við Ylströndina. Hjólastólaaðgengi er frá bílastæðum og inn í þjónustuhúsið á Ylströndinni. Salerni fyrir fatlaða eru í báðum búningsklefum og aðgengi inn í sturtur.

Athugið að ekki er rampur til þess að hjólastólar komist niður á strönd og það er hvorki hjólastólaaðengi inn í gufu né sérstakur búnaður til að komast ofan í pott.

Aðstaða

  • búningsklefar
  • sturtuaðstaða
  • salerni
  • vaðlaug - 38°C
  • heitur pottur í flæðarmáli - 30 til 39°C
  • sjávarlón (innan grjótgarða) - 15-19°C
  • eimbað
  • veitingar - ís, sælgæti og gosdrykkir
  • opnunartímar, sjá Facebook síðu

Hvar er farið ofan í sjó?
ylstrondin-hvar-er-farid-ut-i

Algengar sundleiðir
Synt frá rampi, út að kaðli og til baka. Á flóði eru það um 500 metrar.
Tvisvar á sumri hefur SJÓR Sund- og sjóbaðsfélag Reykjavíkur staðið fyrir Fossvogssundi, þar sem sjósundfólk getur spreytt sig á því að synda fram og til baka yfir Fossvoginn. Það er rétt rúmur 1 km.

Aðstæður og hættur

  • vindáttir
  • öldur
  • straumar
  • bátar
  • hálka
  • grýttur botn
  • mögulegar neyðarútgönguleiðir

Hentar staðurinn byrjendum?

Vefsíða
Ylströndin Nauthólsvík

Facebook
Ylströndin Nauthólsvík

Leiðarlýsing
Leiðarlýsing í Google Maps

Síðast yfirfarið
Upplýsingarnar voru síðast yfirfarnar 14. júlí 2026.