
Opna Íslandsmótið í víðavatnssundi
Ylströndin í Nauthólsvík Nauthólsvík Geothermal Beach
Skráning fer fram í Abler appinu í gegnum Verslanir & Markaðstorg SJÓR.(www.abler.io/shop/sjor/sjosund/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6Mjg3NTM=/)FRESTUR TIL AÐ SKRÁ SIG RENNUR ÚT MÁNUDAGINN 20. JÚLÍ KL. 20:00*ath. ef þú ert ekki nú þegar með aðgang að Abler appinu, þá þarft þú að byrja á því að skrá þig inn í það með rafrænum skilríkjum, slá inn netfangið þitt og staðfesta.Miðvikudaginn 22. júlí stendur SJÓR ásamt Sundsambandi Íslands fyrir Opna Íslandsmótinu í víðavatnssundi.Keppnin fer fram í Nauthólsvík og hefst kl. 16.30.Boðið verður upp á fjórar keppnisvegalengdir:1 km víðavatnssund hentar sundlaugakeppnisfólki og byrjendum.2 km víðavatnssund - Landvættir.3 km víðavatnssund hentar reyndu sjósunds-, þríþrautar og keppnisfólki.5 km víðavatnssund hentar þeim allra reyndustu.Keppendur geta valið á milli neofren galla og venjulegra sundfata samkvæmt reglum FINA. (blöðkur eru ekki leyfðar)Lágmarksaldur er 16 ár og aldurskipting eftirfarandi í kk og kvk: 16-34 ára, 35-49 ára, 50-64 ára og 65 ára og eldri.Veitt verða verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin í hverjum flokki.Verð:5 km, 10.000 kr - mæting kl 16:30, ræst kl 17:003 km, 7.500 kr - mæting kl 17:00, ræst kl 17:302 km, 7.500 kr - mæting kl. 17:00, ræst kl. 17:301 km, 6.000 kr - mæting kl 17:30, ræst kl 18:00Flögur fyrir tímaskráningu*Það er á ábyrgð keppenda að leigja sér flögu fyrir keppnina hér: netskraning.is/flogur/ Þú leigir flögu merkta Íslandsmótið í Víðavatnssundi (22.07) á kr. 1.364Flögur afhentar á mótsstað. Skil eru á ábyrgð keppenda. Vanskilagjald er innheimt fyrir flögur sem ekki skila sér strax eftir mót.Allir iðkendur sjósunds sem og aðrir sundmenn eru hvattir til að mæta og taka þátt, hvort sem þeir eru byrjendur eða keppnisfólk.Dómgæsla verður í höndum Sundsambands Íslands.Keppendur taka þátt á eigin ábyrgð.Bátar og kajakar munu fylgja sundfólkinu.Mikilvægt er að keppendur mæti tímanlega.Mótið verður fullt af spennu og skemmtun eins og undanfarin ár enda keppendur að leggja mikið á sig líkamlega.Kær kveðja,Mótshaldarar... See MoreSee Less

Ylströndin í Nauthólsvík Nauthólsvík Geothermal Beach
FRÍTT FYRIR FÉLAGSMENN!Svona skráir þú þig í félagið:sjor.is/skra-mig-i-felagid/Skráning í sundið fer fram í gegnum Markaðstorg Abler, sjá hér: www.abler.io/shop/sjor?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6Mjg3NTI=Mæting kl. 18:30 og sundið hefst kl. 19:00.Allir sem eiga appelsínugular baujur synda með sínar eigin baujur. Þeir sem eiga ekki baujur verða að synda með appelsínugular baujur frá SJÓR.Boðið er upp á heitan pott í 30 mínútur eftir sundið til að ná upp hita.Af öryggisástæðum eru tímamörk á sundinu og hefur því Börgunarsveitin Ársæll heimild til þess að taka fólk upp í bátinn eftir 45 mínútur.Mikilvægt er að mæta vel hvíldur og vel nærður og vera með skærlita sundhettu öryggisins vegna!Fossvogssundið er tilvalið fyrir þá sem hafa prófað að synda í sjónum og langar að synda yfir í Kópavog og til baka.Bátafylgd verður með hópnum til að leiðbeina og aðstoða sundfólk.Sundið er vottað af stjórn SJÓR í sjósundbókina og nauðsynlegt að hafa lokið Fossvogssundi til að taka þátt í lengri sundum, s.s. að synda út í Viðey.Leiðin frá Nauthólsvík yfir í Kópavog og til baka er um 1100 metrar. Reikna má með að sjórinn verði á bilinu 10 til 13 gráður.Skora á ykkur sem hafið verið að synda i sjónum að skella ykkur með í sundið.Til þess að fá þáttökurétt í sundinu Synt út í Viðey þarf sundmaður að geta sýnt fram á að hann hafi synt Fossvogssund.Ef þið hafið einhverjar spurningar þá er best að hafa samband í gegnum vefsíðuna okkar: sjor.is/hafa-samband... See MoreSee Less

Kría fargufa
SJÓR býður þér að synda út í Viðey föstudaginn 21. ágúst.ATH. breytt staðsetning!Mæting við sjósundsaðstöðuna á Gufunesi kl. 16:00 - sundið hefst kl.17:00.Skráning fer fram í gegnum Markaðstorg Abler:www.abler.io/shop/sjor?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6Mjg3NTQ=*ath. ekki er nóg að skrá “Mæti” við viðburðinn.Í nýja sundinu hjá okkur er einungis synt heilt sund þ.e. 1.500 metra sund.Synt er frà sandfjörunni í Gufunesi að Viðey, klukka bakkann þar, og svo synt til baka að sandfjörunni i Gufunesi.Boðið verður upp á sauna til að hita sig upp eftir sundið.Þeir sem ætla að fara beint heim eða í sundlaug eftir sundið er bent á að hafa aðstandanda með sér.Áður en sundið hefst þurfa allir að heilsa upp á okkur og fá glæsilega sundhettu og rásnúmer.Við gerum þær kröfur að sundmenn hafi synt Fossvogssundið eða sambærilegt sund og sýni fram á það með kvittun í sjóbók.Góð bátagæsla verður á staðnum að aðstoða sundfólk.Reikna má með að sjórinn verði á bilinu 10 til 13 gráður.Ath. ef Sjóbók er ekki til staðar þarf að útlista reynslu með skýrari hætti og ræða við okkur um aðra möguleika á að staðfesta reynslu.Sundið kostar kr. 2.500 fyrir virka félagsmenn og kr. 10.000 fyrir aðra.* Athugið að fólk er á eigin ábyrgð í sundum á vegum SJÓR. Þó verður sundmaður að hlýða kalli öryggisvarðar og koma í bátinn ef verðinum sýnist komið í óefni.* Mikilvægt er að vera vel hvíldur og nærður þegar lagt er í stór sund.* Litríkar sundhettur eru skylda, erfitt getur reynst fyrir þá sem sinna öryggisgæslu að sjá sundmenn með hvítar, bláar, svartar eða gráar sundhettur.* Hér getur þú reiknað sundhraðann þinn (pace):www.calculator.net/pace-calculator.htmlSKRÁNINGU LÝKUR Á MIÐNÆTTI MIÐVIKUDAGINN 19. ÁGÚSTEf þið hafið einhverjar spurningar þá er best að skella þeim hér inn í viðburðinn eða hafa samband í gegnum vefsíðuna okkar:sjor.is/hafa-samband/... See MoreSee Less